Bloggaravísa

Á bloggið mitt velkominn vertu
að skoða allt lætur tímann tifa
en þegar að lesningunni búinn ertu
þá comment máttu helst skrifa

Og ef í hausnum ertu klókur eða klók
eða hefur bara nægann tíma
þá eitthvað sniðugt í mína Gestabók
máttu kvitta, skrifa eða jafnvel ríma.

E.L.G '06

Auglýsing

The big three zero

Leit

Myndir frá Loano!!

30. maí 2009 klukkan 20:27
Hæ hæ! Nú er Loano dvöl minni lokið, ég kom him í gær og er mega þreytt þannig að ég ætla ekki að blogga mikið núna en ég var hinnsvegar að skella inn myndum frá Loano og skrifaði við þær líka. Einhverjir eru búnir að sjá hluta af þeim en það eru s.s komnar flairi í sama albúm.
 
Loano2village
Ykkur að segja þá eru engar myndir af sviðsmyndunum uppsettum því að leikritin verða ekki sett upp fyrr en í sumar og ég kem ekki til með að sjá útkamuna nema þá kannski á myndum.
Segi betur frá öllu seinna því ég er voða þreytt núna en myndirnar ættu að tala sínu máli.
Þar til næst...
 

Lennti í bílslysi!!!

02. maí 2009 klukkan 15:20

Eins og titillinn gefur til kynna þá lennti ég í bílslysi síðasta sunnudag en ég hef ekki getað sagt ykkur frá því fyrr því að ég er ekki með internet þarna í Loano. Þannig var mál með vexti að við fimm sem erum að vinna í þessu vekefni vorum á leiðinni til Loano frá Mílanó og það var grenjandi rigning. Við vorum að keyra á hraðbrautinni í beigju og hún missir stjórn á bílnum og hann fór að snúast og kastaðist allavegana tvisvar utaní vegrið og snerist í allavagana 5 til 6 hringi (ekki velta samt). Um leið og bíllinn stoppaði þá drifum við okkur út úr bílnum og þá kom í ljós að það var í lagi með okkur öll, sem betur fer. Bíllinn hinsvegar var í rúst, öxullinn á framdekkinu vinstra megin brotnaði og og öll sú hlið var krambúleruð. Síðan var taska í skottinu sem var með málingardollum í og hún sprakk og það var máling út um allt, bæði inní bílnum og á götunni. Ég var eiginlega sú eina sem fékk enga málingu á mig og ryndar þegar ég hugsa um það þá fór ekkert á farangurinn minn heldur hehe. Við vorum sumsé einhverstaðar á milli Mílanó og Loano, rétt hjá bæ sem heitir Ovada. Við þurftum að bíða í rúmann hálftíma eftir löggunni í grenjandi rigningu.Löggan kom síðan og líka dráttarbíll og Löggan tók skýrslu á meðan kallinn dró bílinn upp á pallinn hjá sér. Síðan fengum við far með löggunni og dráttarbílnum á löggustöðina í Ovada. Þar biðum við síðan í smá stund og þá kom maður frá hótelinu að sækja okkur. Daginn eftir tókum við það síðan rólega enda öll með strengi og hausverk eftir þetta. Ég er allveg að verða góð eftir þetta, bara smá aum í öxlunum en ég má þakka fyrir að það sé ekki meira að mér eftir að lenda í bílslysi á yfir 100 km. hraða ;)
Ég áhvað að láta fylgja með nokkrar myndir af bílnum og  kort það sem sést c.a. hvar slysið varð.


Mílanó er efst í horninu hægra megin og Loano neðst vinstra megin.


Þessi hlið slapp nokkuð vel og ég var þeim megin, sem betur fer!

 
Hér sést aðieins í dekkið sem brotnaði


Ekki fallegt en hefði getað verið verra, ég á greynilega góðan verndarengil.

Jæja nóg í bili um slæmar fréttir og ljótar myndir en ég ætla að hætta núna. Blogga fljótlega aftur og segi frá Loano.
Þar til næst...

Sól og sæla við stöndina frammundan :D

01. apríl 2009 klukkan 13:11
Vá er ég með fréttir!!! Frá og með 22. apríl til 30. maí er ég að fara í Starfsþjálfun í bæ sem heitir Loano og þar munim við vera að gera sviðsmyndir fyrir fjögur mismunandi leikrit. Leikhúsið er tengt fjögura stjörnu hóteli og þar munum við fá fría gistingu og frítt fæði Smile geðveikt flott hótel og þið getið skoðað síðuna á því hér. Leikritin sem við erum að fara að gera sviðsmynd fyrir heita Brazil, 7 spose per 7 fratelli (7 eiginkonur fyrir 7 bræður), Pétur Pan og svo Mamma Mía. Þetta verður rosalega mikil vinna en ég held að það veri líka rosalega skemmtilegt. Ég mun fara með tveimur öðrum selpum úr bekkrum mínum, einum strák af fyrsta ári og einni stelpu sem að útskrifaðist í fyrra. Ég verð örugglega allveg ferlega klár í Ítölskunni þegar ég er búin í þessu því að ég verð eingöngu í kringum ítali allann sólahringinn í rúmann mánuð.

B.t.w ég var að setja fullt af nýjum myndum þannig að endileg e kíkið á þær og ekki gleyma að kommenta hér Wink

Þar til næst...

 


GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!!!!!!!!

23. mars 2009 klukkan 21:46

Hehehehehehe, gleðilegt nýtt ár, hehehe ég er svo fyndin heheheTongue out

Hvað segiði, voruði farin að sakna mín alveg hræðilega mikið Embarassed Já ég veit upp á mig skömmina og er lötust í heimi að blogga og líka að fara á Fésið og líka að fara á MSN en það er reyndar afþví að það er bilað og þetta e-buddy drasl lætur tölvuna mína alltaf frjósa þannig að ég nenni takmarkað að vera á því. Ég er líka farin að sakna allra rosa mikið og fannst vera kominn tími til að fara að segja fréttir þó að þær séu ekki margar en samt einhverjar og hér koma þær:


  1. ANNA DÓRA ER AÐ KOMA Í HEIMSÓKN 11. APRÍL!!! og ég hlakka geeeeðveikt til :D

  2. Signý, vinkona okkar Óla sem við kynntumst hér á Ítalíu, er flutt inn til okkar og ég deili með henni herbergi. Það er rúmur mánuður síðan hún flutti inn og það er búið að ganga eins og í sögu enda er ég besti herbergisfélagi sem hægt er að fá ef þér er sama um smá fatahrúgur og solleis ;) Signý er líka alltaf að taka í rassgatið á okkur Óla og láta okkur gera eitthvað eins og að máta 10 cm hæla og ljúga að mér að það venjist ;D

  3. Ég er hætt að drekka kók!! og ég held að það sé for real núna. málið er að ég hef verið í sjálfskipuðu átaki í c.a 4 vikur núna og gerði mér nokkrar reglur eins og að ég má ekki borða sykrað nammi. Ég má fá einn pakka af sykurlausu nammi á viku (laugardögum en má spara það út vikuna) og ég má skipta á namminu og fá hnetur og/eða þurkaða ávexti í staðin en þá má ég velja tvo poka. Kók má ég fá aðrahvora helgi og þá bara eitt kókglas eða litla dós en ég er að spá í að sleppa því vegna þess að um helgina þegar ég ætlaði að fá mér kók, eftir að hafa sleppt því í 2 vikur, þá fannst mér það bara ógeðslega sætt og mér varð bara hálf bumbult af því þannig að ég endaði á að gefa Óla það. Það eru fleiri reglur í kúrnum mínum en ég nenni ekki að telja þær allar upp en þær eru hugsaðar þannig að ég geti borðað nánast allt sem er í matinn en ég má bara fá einu sinni á diskinn og ekki kúfullann disk auðvitað. svo er ég að takmarka brauð líka. Við Signý erum líka rosalega duglegar í "ræktinni" en hún á workout disk sem við notum og ég er líka búin að finna meira á netinu eins og magadans og tai chi og pilates og auðvitað yoga líka :D

  4. Skólinn gengur vel, ég er ennþá að gera la traviata verkefnið en það mun vera út allann  veturinn. Ég ætla að reyna að setja inn einhverjar myndir frá því eins fljótt og ég get en ég gleymi alltaf að taka myndavélina með í skólann.

  5. Ég fór í la Scala um daginn, með skólanum, til að fylgjast með æfingum. Við fengum að sitja í salnum þar sem að leikstjórinn og allir þeir voru en yfirleitt er ekki hleypt þangað nema á sýningum. Það var rooosalega fallegt þarna. Ég hafði reyndar komið áður í Scala en þá var ég aðalega að skoða safnið og bara rétt kíkti á salinn enda fékk maður bara að fara inn á svalir.og horfa yfir.

  6. Ég tók mig til og saumaði á mig tvo kjóla um daginn. Einn "Emami"kjól og einn "Lemuria"kjól (líka þekktur sem Egg kjóllinn). Það er hægt að breyta þessum kjólum á alskonar vegu þannig að það má segja að ég hafi saumað fullt af nýjum kjólum á mig ;D

Ég er að hugsa um að segja þetta gott í bili en ég ætla að reyna að láta ekki líða svona langt á milli færsla hjá mér í framtíðinni, þori samt ekki að lofa neinu ;D

Þar til næst... 

 

zwani.com myspace graphic comments


Myspace Funny Hello Comments

Er að koma heim :D

18. desember 2008 klukkan 00:13
Hæ hó ég er á lífi (eða svona rétt hangi) ;P Það eru eflaust margir farnir að undrast um mig en ég er búin að vera á haus í því að föndra jólagjafir á milli þess sem ég er í skólanum eða læri heima :D má ekkert vera að því að fara á msn ;) en það er í lagi því að ég kem heim á föstudaginn sem er eiginlega á morgun því að klukkan er orðin meira en tólf bæði hér og heima ;) Ég legg líka af stað á flugvöllinn eftir tæpann sólarhring því að við Óli áhváðum að spara okkur leigubílakostnað og taka síðustu rútuna á flugvöllinn og eyða nóttinni þar. S.s metró gengur ennþá á þeim tíma.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra því að ég þarf að halda áfram að gera jólagjafirnar... allavegana eins lengi og ég tolli vakandi ;)

SJÁUMST Á KLAKANUM :D

Þar til næst... 
 
 

Mikið að gera ;)

08. desember 2008 klukkan 02:34
Mikið er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Svo mikið að ég þurfti að lesa bloggið mitt til að vita hvert ég var komin ;D
Jónína semsagt var hér og kvaddi okkur með sorg í hjarta sunnudagskvöldið 2. nóvember. Svo liðu tvær vikur þar sem ekki gerðist mikið (annað en skóli).

14. nóv. komu síðan Heiða og Guðjón í heimsókn. Ég sótti þau á lestarstöðina allt of seint því að ég var búin að segja þeim að senda mér sms þegar þau færu í rútuna svo að ég gæti vitað hvenær ég ætti að leggja af stað og ég beið og beið og svo reindi ég að hringja og það svaraði enginn og ég hélt kannski að það hefði verið seinkun og beið smá í viðbót og síðan reindi ég aftur að hringja og þá svaraði Heiða. Þá voru þau alveg að verða komin á lestarstöðina og höfðu sent sms en það komst ekki til skila. Ég fór þá af stað og kom tæpum hálftíma of seint að sækja þau. Næst þegar ég fæ gesti ætla ég að láta þá hringja en ekki senda sms því að það er greynilega ekki nógu öruggt :P 
Heiða og Guðjón voru hjá mér 5 daga og það var mikið gert á þeim tíma. Á laugardeginum fór ég með þeim á markaðinn sem við Óli verslum alltaf matinn. Svo seinnipartinn fórum við í stórann göngutúr um hverfið mitt.
 
Á sunnudeginum löbbuðum við að Duomo sem er u.þ.b klukkutíma ganga með því að kíkja í nokkra glugga og fá sér líka besta ísinn í mílanó (sem ég hef smakkað allavegana)  á leiðini. Ég kíkti með þeim inn í Duomo og sendi þau svo ein upp til að skoða þakið því að það kostar og ég hef núþegar farið tvisvar upp. Eftir það fórum við að Kastalanum og tókum smá göngu ´garðinum en þar var síðan hópur af mönnum frá Senegal sem voru að tromma á bumbutrommur og syngja. Virtust bara vera að þessu að ganni en ekki skipurlagt skemmtiatriði. Um kvöldið fórum við á Pizza Antica sem er pizzastaður sem við tökum alla gesti á því að það er uppáhalds pizzastaðurinn okkar.
 
Á mánudeginum fór ég í skólann en Heiða og Guðjón fóru á flakk á meðan, meðal annars til að sjá fótboltavöllinn þar sem AC Milan spilar.
Þriðjudagurinn var svipaður og mánudagurinn nema að ég hitti þau í hádegispásunni og fór með þau í skólann minn til að sína þeim hann. Um kvöldið vorum við síðan bara með rólegheit því að þau þurftu að pakka og fara snemma að sofa því að það var langur dagur frammundan þar sem að þau þurftu að bíða 10 tíma á milli fluga :O Þau skelltu sér reyndar til London í milli tímanum þannig að tíminn leið hratt.
 
Daginn sem Heiða og Guðjón fóru fór ég síðan í ferðalag með krökkum í bekknum mínum. Þannig var að einn kennari í skólanum, sem að var að kenna okkur aðalfagið okkar í fyrra, bauð bekknum mínum að koma að sjá generalprufu á leikriti sme að hann hafði gert sviðsmyndina á. Við fórum á þremur bílum (það fóru ekki allir með). Þetta var 4 tíma akstur frá Mílanó í bæ sem heitir Bolzano og er rétt hjá landamærum austurríkis. Við vorum komin þangað um hádegi og fórum beint á studenta gistihúsið þar sem við ætluðum að gista. Það kostaði bara 20 evrur nóttin og það var morgunmatur innifalinn. Eftir að við vorum búin að fara með dótið okkar á herbergið fórum við að hitta hina og borðuðum síðan hádegismat öll saman. Eftir það hittum við kennarann okkar í leikhúsinu og hann sýndi okkur leikhúsið frá toppi til táar, bókstaflega! Ég stóð fyrir ofan ljósin á bitum sem maður sá í gegnum allveg 20 metra niður á sviðið. Það var rosalega gaman að sjá þetta allt saman. Um kvöldið fórum við síðan að borða en þjónustan var svo hæg þar að við enduðum á að gleipa í okkur matinn til að verða ekki of sein á generalprufuna. Leikritið sem við sáum var um Kafka og átti að gerast um það leiti sem hann var að uppgötva hæfileika sína. Sviðsmyndin var rosalega flott og sniðug en ég kann ekki að lýsa henni. Þegar sýningin var búin fórum fjögur af okkur, kennarinn, leikstjórinn og leikararnir á bar þar sem sumir fengu sér að borða og aðrir bara bjór. Við stoppuðum ekki lengi enda þurftum við að vakna á skikkanlegum tíma daginn eftir til að keyra aftur til Mílanó. Ferðin var rosalega skemmtileg og ver gott tækifæri til að kynnast krökkunum betur og líka til að æfa mig í ítölskunni.
 
Mánudaginn eftir ferðalagið byrjaði ég í verkefni sem eitt leikhús hér í Mílanó var með. Fimm krakkar úr mínum bekk (þar á meðal ég) tóku þátt í þessu. Við vorum s.s hluti af svokölluðum focusgroup(kann ekki að þýða það) en við þurftum að horfa á sama leikritið 7 kvöld í röð og síðan áttum við að segja leikstjóranum og handritshöfundinum hvað okkur fannst. Leikritið var rosalega skemmtilegt og fjallaði um fjölskýldu sem að var soldið mikið spes. Mamman var illa bitur yfir því að maðurinn hennar hafði yfirgefið hana og hún tók það út á syni sínum. Sonurinn var orðinn skemmdur því að mamman kom svo illa fram við hann og var farinn að flassa konur í almenningsgerðinum. Dóttirin var hunsuð af mömmunni og var alltaf að reyna að fá athygli hennar (hún átti held ég að vera bara 11 ára). Söguþráðurinn var síðan c.a þannig að sonurinn kom heim í panikki því að löggan var á eftir honum því að hann hafði flassað konu í almenningsgarðinum. Síðan kom löggan ásamt konunni og fóru að yfir heira stelpuna og síðan mömmuna en mamman fór að daðra við lögguna. Atburðarásin þróaðist síðan þannig að mamman vildi drepa soninn því að honum væri ekki bjargandi og hún endaði á að gera það. Stíllinn á leikritinu var mjög skemmtilegur og spes. T.d var engin sviðsmynd. Á miðju sviðinu var sjónvarpstæki og var það notað sem bæði sæti og borð og sjónvarp auðvitað. Svo voru 4 litlir stólar. Í byrijun leikritsind var síðan krítað á gólfið stór kassi sem táknaði heimilið þeirra. það var mjög töff.
Á sama tíma og ég var í þessu focusgroup var ég að gera hellings heimavinnu fyrir La Traviata verkefnið. Ég var að hanna búningana (auðvitað) og svo var líka notað að mikluleiti mín hugmynd í sviðsmyndina :D Ég set inn myndir af þessu öllusaman þegar þetta er tilbúið.

Á þriðjudaginn síðasta átti Óli afmæli og ég planaði soldið skemmtilegt handa honum. Ég faldi pakka út um alla íbúð og og kortið á öllum pökkunum var með mismunandi disney prinsessum þar sem að ég var búin að setja andlitið á Óla í staðinn fyrir prinsessurnar. Í hverum pakka var vísa sem var vísbending á næsta pakka. Í pökkunum voru síðan mis skemmtilegar gjafir, eins og t.d fyrsta gjöfin var morgunkorn sem Óla fynnst svo gott og í einum var bolli sem hann átti sjálfur og ég setti mynd af mér í hann ;P Aðal gjöfin var samt gulur arabaklútur og hann var rosa ánægður með hann. Óli hélt síðan uppá afmælið sitt í gærkvöldið og þá höfðum við apperotivo en það er svona smáréttahlaðborð. Ég bakaði líka magavöðvaköku handa honum og hann var í skíjunum yfir því :D Það komu bara tveir gestir í afmælið (fyrir utan okkur Óla). Það var stelpa sem er með Óla í bekk og kærastinn hennar. Þau eru rosalega fín og það var rosalega gaman í gær :D

Jæja ég er að hugsa um að venda mínu kvæði í kross og hætta að skrifa í bili því að klukkan er orðin 2 og ég ætla að fara að sofa. Sjáumst þann 19. desember ;D

Þar til næst... 
 

Botnið þetta :D

06. nóvember 2008 klukkan 10:29



Ef botnið þessa vísu vel
og vandið orðavalið.

... 



Þar til næst...





 

Hvað segiði... eruði farin að sakna mín?? ;P

29. október 2008 klukkan 17:56
Ja hérna hér, ætli það sé ekki kominn tími á að fara að blogga smá ;D

Ýmislegt hefur drifið á mína daga síðan ég kom heim á viale Tibaldi. Eins og flestir vita þá er ég byrjuð í skólanum. Fyrstu tvær vikurnar var ég í corsi intensivi sem er einhverskonar hrað fag og yfirleitt er gefin einkunn í svoleiðis fagi en hjá mér var það notað sem undirbúningur fyrir aðalfagið mitt í vetur. Við munum búa til sviðsmynd fyrir La Traviata. Í þessu corsi intensivi fengum við skemmtilegar tilbreytingar eins og t.d kom kona sem að var búningahönnuður m.a í la Scala og hún sýndi okkur möppur með búningum sem hún hafði hannað fyrir hinar ýmsu sýningar. Síðan kom næsta dag kona sem var sérhæfð í special effects eins og að sminka skurði á líkamann og líka að búa til silicon grímur sem líta raunverulega út svona eins og er mikið notað í bíómyndum. Síðan fórum við í vettvangsferð í Leikmunagerð og það var æðislega gaman að sjá það því að þar var hægt að fynna allt frá erfi mat uppí heilu brynjurnar og faróa og bara nefndu það. Sáum t.d hjálma og brynjur sem voru notaðar í ástríks og steinríks bíómyndinni. Seinni vikuna í corsi intensivi var síðan maður að kenna okkur sem að var sviðsmyndahönnuður í kvikmyndabransanum. Hann sýndi okkur fullt af myndum af því sem hann hafði gert og eitt af því var t.d bíómynd sem er held ég í bíó núna eða kemur á næstunni. hún heitir Inkheart og er m.a með Brendan Fraisher.

Föstudaginn síðasta kom síðan hún Jónína í heimsókn frá Frakklandi og hún er hér enn og verður þangað til á sunnudaginn. Við erum búnar að fara í svona Túristastrætó saman og kíkja í búðir líka. Höfum samt tekið því frekar rólega því Jónína getur ekki alveg keyrt sig of mikið út þí sínu ástandi ;)

Skólinn byrjaði samhvæmt stundaskrá á mánudaginn. Ég skelli örugglega inn stundatöflu þegar ég er búin að setja hana á tölvutækt form. Ég sagði ykkur áðan að ég er að fara að gera sviðsmynd fyrir La Traviata. Ég er líka að fara að gera sviðsmynd fyrir Carmen í öðru fagi en þar verður meira horft á tækniatriði. Bæði verkefnin eru hópverkefni sem ég er reyndar ekki allt og hrifin af en það gæti hinnsvegar verið gott fyrir mig uppá ítölskuna að gera. Vona samt að það verði líka einhver einstaklings verkefni í vetur því að þá er auðveldara að láta ljós sitt skína ;)

Jæja ég ætla að segja þetta gott í bili og ég ætla að reyna að láta ekki líða svona langt á milli færslna hjá mér næst en ef þið viljið styrkja mig í því þá er besta leiðin til þess að kommenta hjá mér því að það virkar eins og vítamínsprauta á mig og því fleiri komment sem ég fæ því blogg-glaðari verð ég ;D   Engin pressa samt ;) 

Þar til næst...
 

Italia ancora!!

01. október 2008 klukkan 12:07
Jæja þá er ég komin aftur til Ítalíu og þá er um að gera að fara að blogga :)

Ég hafði það rosa fínt í sumar, þrátt fyrir mikil blankheit, og gerði helling skemmtilegt en var samt mest að vinna. Mér tókst síðan að slasa mig um daginn, ég snéri á mér ökklann og það trosnuð e-ð liðbönd en samt ekki alvarlega neitt, ég missti bara 4 daga úr vinnu við þetta. Er pínu bólgin og marin ennþá en er farin að ganga nokkuð eðlilega aftur nema þegar ég er að reyna að ganga mjög hratt eða hlaupa.
Fyrsti skóladagurinn minn er í dag og það er e-r kynning á því sem verður gert næstu daga en ég reikna ekki með að venjuleg kennsla byrji fyrr en eftir í fyrstalagi tvær vikur, fyrst koma allskonar námskeið eða stuttir áfangar og workshop.

Ég ætla hafa þetta stutt núna en ég læt heyra í mér fljótlega ;D

Þar til næst...



zwani.com myspace graphic comments

Blogga seinna ;P

07. ágúst 2008 klukkan 13:19
Já það er mjög gott að vera á Íslandi, svo gott að ég nenni varla að fara í tölvuna enda hef ég varla sést á MSN síðan ég kom. Ég er líka að vinna mjög mikið. Ég skal reyna að henda inn almennilegri færslu bráðum en það verður ekki núna. Bless í bili ;D

Þar til næst...




zwani.com myspace graphic comments


Hér er ég ;D

  • Nafn: Erna Lóa
  • Staður: Milano, Ítalía
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi

My Gay husband

Leikur dagsins

I support